Halló halló.. útlitið á síðunni er enn í einhverju fokki en sýnið biðlund gott fólk, þetta er allt að gerast.
Ég fór í sveitina með Silju frænku um helgina, hitti týnda ættingja og skoðaði gamlar fyllirísmyndir af gamla fólkinu.. skil allt miklu betur núna. Ég brá mér líka á ball með stórhljómsveitinni VON sem þið kannist væntanlega öll við. Það fór nú ekki betur en svo að ég dansaði við einhvern Jóhann smíðakennara sem var svo æstur í mig að ég þurfti að eyða seinni hluta næturinnar í að losa mig við hann.. þegar það tókst trúði hann Silju fyrir því að hann hefði nefnilega alltaf verið svo skotinn í mömmu minni.. OJ! En svo fundum við kúk í pissuskál og það var eiginlega ógeðslegra.. já það er greinilega aldrei lognmolla á Sauðárkróki.
Nú er ég aftur komin heim og með augnsýkingu í þokkabót.. svei mér þá ef ég er ekki bara með ofnæmi fyrir smábæjum, fékk nefnilega líka svona eftir að ég fór til Grundarfjarðar í vor.
Ætla að fara að þrífa af mér smábæjarskítinn svo Víkingur geti farið með mig í þriggja daga rómantíska óvissuferð..
Bless
Engin ummæli:
Skrifa ummæli