Vont að hlæja…
og tala og anda og bara hreyfa sig yfir höfuð!
Það heitir rifbeinsbrot, gerðist í nótt og er alveg til að toppa allt sem hefur gengið á í mínu lífi undanfarið. Ja, FÝ segi ég nú bara! (fyrir þá sem ekki vita er fý viðurkennt í íslenskri orðabók og þýðir sama og svei).
Var á kaffibarnum í megastuði ótrúlega hress að tala við folk og hallaði mér upp að því sem ég hélt að væri veggur.. en neeeei, þá var það brunaútgangshurðin.. sem var opin eða opnaðist og út valt ég með látum. Venjulega finnst mér bara fyndið þegar ég dett og meiði mig ekki mikið en í þetta skiptið var það frekar vont, missti andann og gat svo eiginlega ekkert hreyft mig án þess að emja. Þannig að það var hringt á sjúkrabíl sem aldrei kom, og eftir að vera búin að liggja í polli fyrir utan kaffibarinn í hálftíma með allskonar fólk stumrandi yfir mér endaði með því að 3 mjög indælir og skilningsríkir lögregluþjónar skelltu mér og mínu fríða (og vel fulla) föruneyti aftan í löggubíl og skutluðu okkur uppá slysó. Svo var ég sett í eitthvað rúm á sjúkrahúsinu þar sem ég lá eins og aumingi og grét og var spurð hvort ég hefði komið inn á sjúkrahús erlendis nýlega sem ég viðurkenndi.. hljóp þá manneskjan fram í miklu ofboði og kallaði niður ganginn MÓSAAAAAA!!!!!!. Eftir það kom enginn nálægt mér nema að vera í gulum slopp og gúmmíhönskum og meiraðsegja ég var sett í sama átfitt þegar ég fór í röntgen. Allskonar folk kom og skoðaði mig og fór svo bara aftur án þess að segja neitt, mér voru svo gefin verkjalyf og að lokum sagt að ég væri rifbeinsbrotin og mætti fara heim. Þannig að nú ligg ég bara uppí sófa, maula parkódín forte og vona að mér hætti einhverntíman að vera illt.
Kamilla á hins vegar víst alveg frábærar myndir af atvikinu og þig getið beðið spennt eftir birtingu þeirra hér a netheimum...
Og endilega setjið símanúmerið ykkar á kommentakerfið mitt eða sendið mér sms með nafni því síminn minn lenti líka í polli og er nú dáinn..
GLEÐILEG JÓL ELSKURNAR!
4 ummæli:
æji litli klaufabjáni.
veit hvað þetta er vont...finn til með þér litla.
knús á íslandið:*
það staðfestist æ betur sem ég hef alltaf sagt stelpa! þú gerðir reginmistök og síðan þá er eins og ill álög hvíli á þér.
djók!
farðu vel með þig hrakfallabálkur :)
sko, maður á aldrei að viðurkenna að maður hafi verið á sjúkrahúsi erlendis, bara ljúga, það lærðist mér á mínum Mósa degi á bráðamóttökunni!
Æjæj.
Sæl og takk fyrir seinast.
Ég má nú til með að monta mig því ég var búinn að vera rifbeinsbrotinn á tveimur rifbeinum í tíu daga þegar ég loksins kíkti upp á slysó.
Skrifa ummæli