Jæja, þá er ég komin í ört vaxandi hóp þeirra sem hvorki nenna að hringja í vini sína né skrifa þeim. Í staðin bloggum við og þá geta þeir sem nenna lesið það sem á daga okkar drífur.. SNIÐUGT, ekki satt?!
En semsagt.. fyrir þá sem ekki vita það þá skrapp ég til Lundúna á dögunum til að heimsækja minn heittelskaða Sean (og Víking kærasta líka).
ÞAÐ VAR FRÁBÆRT!!!
Ég fékk LOKSINS að RÍÐA sem var í sjálfu sér nóg til að ferðin borgaði sig.. en svo gerði ég líka allskonar skemmtilegt annað líka. Ég fór tvisvar í leikhús (reyndar í bæði skiptin að sjá R&J) og það var rosagaman, allir að leika á ensku og stóðu sig frábærlega. Einn var nú samt sem skaraði svo framúr í fyndni og frábærleika að þeir leikhúsgestir sem ekki höfðu þvagblöðru úr stáli eins og við íslenskir víkingar hafa eflaust pissað á sig. Það var auðvitað hann Víkingur sem um ræðir og fegin er ég að vera ekki að vinna við þrif í Young Vic um þessar mundir!!!
Svo gerðist ég menningarleg og fór á lista- og hönnunarsöfn og var spekingsleg á svipinn og ræddi við fólk um stefnur og strauma. Ég fór líka og skoðaði The London Aquarium sem er fiskasafn, og ef frá eru taldir nokkrir litlir hákarlar sem þar halda sig má finna svipaða hluti í Húsdýragarðinum og í fiskabúrinu á Bautanum. Samt alltaf gaman að skoða skrýtna fiska og hlæja að því hvað þeir eru asnalegir í framan! Af hverju eru annars ekki hákarlar í húsdýragarðinum líkt og þorskar, ýsur, selir og aðrir fiskar sem þar fyrirfinnast???
Það var samt eitt sem skyggði á hina annars fullkomnu og rómantísku viku mína í höfuðborg Breta. Síðasta daginn minn, þar sem ég stóð fyrir utan lestarstöð klyfjuð öllum mínum farangri sá ég blaðasala sem var að selja Glamour, Vogue, Cosmopolitan og önnur tímarit á mjög hagstæðu verði. Ég ákvað að þetta væri minn dagur.. dagurinn sem ég keypti mitt fyrsta, og ég endurtek mitt FYRSTA glanstímarit (fyrir utan nokkur Bravo blöð þegar ég var 11 en þau teljast að sjálfsögðu ekki með). Ég skoðaði öll blöðin gaumgæfilega og ákvað að lokum að kaupa eitt Cosmo og eitt Glamour. Ég var eins og gefur að skilja ótrúlega spennt yfir þessum kaupum og var full eftirvæntingar þegar ég hjúfraði um mig upp í sófa heima á Bergþórugötu með innkaupapokann minn og hugðist lesa mitt fyrsta Cosmopolitan blað. Ég stakk hendinni ofan í pokann og dró blaðið upp úr.. blasti þá við mér MAXIM plus FREE SEXY SPORTS CALENDAR 2004!!!! Fyrir þá sem ekki þekkja til MAXIM þá inniheldur þetta tímarit meðal annars: ladies-beer-gadgets-sport-crime-cars-jokes og auðvitað ýmislegt fleira álíka spennandi, jafnvel síður.
Þannig að lokum vil ég efa ykkur þetta ráð:
Kíkiði ofan í pokana ykkar ef þið viljið ekki sitja uppi með bílapistla og myndir af fáklæddum konum með golfkylfur og köflótt kaskeiti!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli