Hvers á ág að gjalda??
Ég á að vera að gera ritgerð í skólanum og væri sjálfsagt að því ef einhverjar heimildir væu til um ritgerðarefnið sem ég valdi mér. Ég hafði semsagt hugsað mér að skrifa um einn áhrifamesta leikmyndahönnuð sögunnar en það er eins og með annað ritgerðarefni sem ég hef valið mér.. Það er aldrei neitt til!!!! Þegar ég var í London fór ég sko inn í allar bókabúðir sem á vegi mínum urðu til að spurja eftir efni um þennan mann en aldrei fannst neitt fyrr en ég fór í National Theatre bókabúðina. Þar fannst ein bókí tölvunni en hún var ekki til. Ég ákvað að fara á netið.. það er ALLTAF hægt að finna upplýsingar um ALLT á netinu!! Þegar ég sló inn nafn mannsins á leitarvefnum var hins vegar það eina sem kom upp blaðagrein úr Times frá 2002 um að kallinn hefði dáið.. þannig að nú get ég ekki einusinni látrið mig dreyma um að hringja bara í hann ef allt annað bregst! Ég fór líka á Amazon til að gá hvort að eitthvað fyndist Þar og viti menn, nokkrar bækur og allar 'out of print'. Ég er reyndar búin að komast yfir einn bækling um hann en sá er á ítölsku og kemur þess vegna ekki að miklu gagni, og þótt ég myndi hreinlega ítölsku á næstu dögum þá væru samt sjálfsagt ekki nægar upplýsingar í bæklingnum til að byggja heila ritgerð á.
Annars fór ég í leikhús í gær með systrunum sæti Krístínu og Tanju .. reyndar í fyrsta skipti í langan tíma sem ég fer í leikhús til að sjá eitthvað annað en R&J. Það var skemmtileg tilbreyting! Hér var semsagt Stúdentaleikhúið á ferð með leikgerð eftir skáldsögunni 1984 eftir George Orwell. Síðast sá ág hjá þeim Todd Sweaney - Morðóða rakarann við Hafnargötuna sem var alveg frábært ogsubbulegt og þetta er sko ekki síðra! Meðlimir Stúdentaleikhússins eiga sko hrós skilið, mér fannst þau sko miklu miklu betri en margir atvinnuleikhópar sem ég hef séð!! OG það kostar bara 500 fyrir nema og 1000 fyrir aðra en ekki 50.000 eins og á skítaGrease eða 2500 eins og á flestar aðrar sýningar!
Svo er það frábær að fara að gerast að Kata (sem var) með brjóstin er að koma til landsins á mánudaginn VEI!!! Hún ætlar að stoppa í 10 daga í Reykjavík og það getur sko alltaf gaman þegar Kata er í bænum.. við munum sko sveifla brjóstunum og dansa bootydansinn stanslaust allan tímann!
Ráð dagsins:
Þeir fáu sem ekki eru flúnir til heitari landa og eru staddir í Reykjavík, drífið ykkur endilega að sjá sýninguna næstu helgi í Tjarnarbíó af því að svo er hún búin - og ef ykkur finnst ekki gaman à leikhúsi fariði samt af því að þá fáiði að sjá alvöru lifandi tippi OG Melkorku leika ríðusenur!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli