Í dag er 13. í jólum og jólin opinberlega á enda!
Það er ekki lítið sem allir hafa verið latir við að blogga yfir jólin en það finnst mér gott því mér þætti leitt ef einhver hefði eytt jólafríinu sínu í að hanga á netinu. Þetta var annars frábært jólafrí! Ég var í fríi frá vinnu og skóla, fór til útlanda, átti afmæli, hitti fólk sem ég hef ekki hitt í 100 ár og átti góð djömm. Áramótadjammið var að vanda frekar misheppnað en samt gott kvöld, hitti allskonar ómótstæðilegt og frábært fólk. Við vorum staðráðnar í að fara ekki í bæinn en þar sem engin almennileg partý (og þá meina ég partý sem eru ekki búin fyrr en síðasti maður er dauður eða farinn) voru í boði fórum við á Kaffi Akureyri þar sem Berglind plöggaði geðveikt og lét hleypa okkur inn bakdyramegin. Ég skildi bjórinn eftir í partýinu þar sem einn þeira sprakk og flæddi um allt þvottahúsgólfið hjá Tomma Árna, sorglegur endir á góðum bjór.. grunar að silfurlituðu pinnahælarnir hennar Katrínar sem voru í sama poka hafi átt þarna hlut að máli...
Á Akureyri komst ég líka að því af hverju fólk horfir á Idol.. sá nefnilega einn þátt hjá Berglindi og er geðveikt spennt, er jafnvel að pæla í að horfa aftur næsta föstudag..
Eftir frábæra og vel heppnaða Akureyrarferð kom ég suður, náði hoppi þrátt fyrir fulla vél sem var gott en því miður varð taskan mín eftir á Akureyrarflugvelli.. skil að farangur týnist á Heathrow þar sem milljón flugvélar og fara á hverjum degi en á Akureyrarflugvelli.. aðeins minni traffík! En allt fór vel og taskan kom með næsta flugi og var svo keyrð heim til mín í tæka tíð fyrir gott partý.. ekki fjölmennt en þegar fólk á borð við Katrínu Björk og Tinnu Magg er saman komið á einum stað þarf sko ekki fleiri.. það hefur nágrönnunum allavega örugglega fundist!
Svo virðist það vera að verða að hefð að ég keyri Drottninguna út á flugvöll.. það virðist líka vera hluti af hefðinni að ég sé þunn. Þessi ferð fór samt betur en sú síðasta.. Víkingur gerðist svo sætur að keyra bílinn þannig að ég gat hámað í mig hamborgara með frönskum á milli og mikilli sósu óáreitt á leiðinni. Hann gerði það reyndar að verkum að ég varð bílveik og þurfti að hafa hausinn út um gluggann.. komst samt hjá því að æla og mætti ótrúlega hress í vinnuna klukkan 6.
TAKK ÞIÐ ÖLL SEM ÉG HITTI Í JÓLAFRÍINU FYRIR AÐ GERA ÞAÐ FRÁBÆRT.. og hinum sem ég hitti ekki GLEÐILEG JÓL OG NÝTT ÁR!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli