föstudagur, desember 19, 2003

¡5 dagar til jóla!
Ég á ekki lengur afmaeli en er entá á Spáni og er entá ad fá afmaelisgjafir.. fékk sko TVAER í dag! Berglind saeta gaf mér eyrnalokka sem mig langadi gegt í og sparibauk sem er gomul dós.. hljómar ekkert mjog vel en er ótrúlega flott! Svo keypti ég mér aedislega camper kuldaskó frá henni elsku mommu minni.. ¡¡TAKK MAMMA OG BERGLIND!!

Annars er ótrúlega frábaert hér í Madríd! Á afmaelisdaginn minn fórum vid út ad borda á mjog fyndinn stad tar sem vid átum pínulitlar paprikur sem voru ótrúlega gódar nema ad inná milli voru nokkrar ótrúlega sterkar og engin leid ad tekkja á milli.. tad gerdi máltídina mjog spennandi. Í gaer fórum vid í Xanadu semn er verslunarmidstod og vitidi hvad.. ¡¡¡¡¡¡tad er SKÍDABREKKA inni í henni!!!!!! Og tetta er sko ekkert grín.. madur getur hort í gegnum gler og séd fólk í snjógollum med hjálma renna sér á skídum og snjóbrettum, ef tad vaeri skídabrekka í kringlunni (eda krónunni á Akureyri) er ég viss um ad fólk faeri miklu meira á skídi. ¡Ég held ad tetta sé tvímaelalaust eitthvad sem vid aettum ad athuga! Vid ráfudum um búdir en tad leiddi fljótt til tunglyndis, oll fot voru ljót og vid fundum engar jólagjafir.. tannig ad vid brugdum á tad rád ad fá okkur bjór. ¡Nú hef ég fengid tad stadfest í eitt skipti fyrir oll ad bjór er allra meina bót! Eftir nokkra og gott spjall fórum vid aftur á stúfana og hvad haldidi.. ég keypti mér gallabuxur og Berglind ledurjakka OG vid vorum eiginlega búnar ad ákveda naestum allar jólagjafirnar. ¡Já, aldrei framar skal ég vanmeta undramátt áfengis!

Hér í Madríd er allt morandi í gomlu fólki.. ¡og tá meina ég ad tad er út um allt, sérstaklega í samgongukerfum borgarinnar! Og gomlu konurnar, tad skal ég segja ykkur ad taer svífast einskis. Tad var til daemis ein í metróinu sem turfti ad komast fram hjá mér tannig ad ég faerdi mig til hlidar eins og kurteisu ungmenni ber en hún ýtti mér samt og hélt sko áfram ad ýta mér tangad til ad hún nádi ekki lengur til mín. Í dag var sraetóinn okkar fullur af gomlum konum og ég verd ad vidurkenna ad ég var bara hálf hraedd eftir atburdinn í metróinu.. mig grunar ad tad hefdi lítid turft út af ad bera til ad konurnar hefdu rádist á okkur Berglindi og barid okkur til óbóta med handtoskunumn sínum (¡sem voru orugglega fullar af múrsteinum!)

Hér í madríd er líka allt fullt af frábaerum búdum! Tad er ein sem heitir Curiosity shop og hefur ad geyma ótrúlegustu hluti.. gamla tyggjósjálfsala, beljur í balletbúningum, dúkkulísur af ollu frá Shirley Temple ad 80's kvikmyndastjornum og allskonar fleiru skemmtilegu.. held vid hofum eytt tveim klukkutímum inni í henni í dag.. ¡og hún er ca 10 fermetrar!

Nú aetla ég ad haetta tannig ad ég geti farid ad drekka bjór og raudvín...

Rád: ¡Heimsaekjidi Berglindi í Madríd tví tad er sko ótrúlega gaman og hún er frábaer guide!

Engin ummæli: