ÚFF.. leikhúsferð dauðans!
Sá sýningu á stóra sviði þjóðleikhúss bresku þjóðarinnar í kvöld og þetta var mögulega það versta sem sett hefur verið upp þar.. allavega vona ég það því þetta var það versta sem ég hef séð.. ég held meira að segja að þetta hafi náð að toppa Vatn Lífsins í ömurleika ( og það er ekki auðvelt, fyrir þá sem voru svo heppnir að missa af þeirri sýningu). Það leið ekki sú mínúta að mér leiddist ekki og langaði til að fara og ég var í alvörunni næstum búin að gubba í lok sýningarinnar.. mér var svo misboðið að ég engdist hreinlega um í sætinu mínu og vinur minn sem sat við hliðina á mér hélt að ég væri að gráta! Best ég hætti hér áður en ég brýt eitthvað og ætla að hugsa um eitthvað annað.. eins og til dæmis að Berglind er að koma að heimsækja mig á leiðinni frá Íslandi til Spánar.. JEIJ! Fleiri ættu að taka sér hana til fyrirmyndar..
Engin ummæli:
Skrifa ummæli