þriðjudagur, janúar 25, 2005

Nú er ég búin að lifa í þögn og einangrun í næstum tvær vikur og ég verð að viðurkenna að ég hef átt skemmtilegri tímabil í lífi mínu.. Fólkið hér í íbúðinni er voða indælt svosum, þá sjaldan ég sé það, en það er einhvernvegin ekki alveg nóg til að fylla tómarúmið í lífi mínu (þar sem þið eigið öll að vera!) Ég tók þess vegna ákvörðun í gær um að segja upp herberginu og flytja út eftir tvær vikur.. þótt að það þýddi að ég finndi ekkert almennilegt og flytti aftur í litla herbergið mitt hjá Lydiu frænku. En viti menn, guðirnir vaka yfir mér og í skólanum í dag var ég að tala við stelpu í bekknum mínum og hún sagði mér að stelpan sem býr með henni er að flytja og ég gæti fengið herbergið hennar.. eftir ca. 2 vikur! Þetta er ekki alveg pottþétt enþá og ég á eftir að sjá herbergið en þetta hljómar alveg fullkomið.. allir að vona vona og koma svo í heimsókn!
Í dag var líka góður dagur af því að ég tók stórt skref í verkefninu mínu í skólanum og finnst ég loksins komin á stað þar sem ég veit hvað ég ætla að gera, sem er frábært, og svo er ég líka smám saman að kynnast fleirum sem er líka gott.
Fyndið í dag.. ég var að skrifa minnismiða í símann minn og skrifaði hann á ensku, ég verð pottþétt komin með hreim um páskana, bíðiði bara!
Þið hafið kannski tekið eftir því líka að ég er farin að nota íslenska stafi og ástæðan er sú að ég er komin með internet heima JEIJ.. það er svo frábært að mér er næstum sama þó ég búi í klaustri.. næstum. En það er samt líka vont af því að nú geri ég eiginlega ekkert annað en að vera á netinu og kem engu í verk.. en þetta er vonandi bara eins og þegar maður er að byrja með einhverjum, þá gerir maður ekki annað en að stunda ástarmök allan daginn eins og heimsendir sé í nánd og svo eftir nokkra mánuði þá getur maður farið að sinna daglegu amstri enn á ný.
En vitiði hvað.. ÞAÐ ER GESTUR Í HÚSINU! Ég kom heim áðan og mætti mér þá ekki ókunnugur maður sem bauð mér upp á kaffi.. þegar ég hafði jafnað mig eftir áfallið spurði ég hann hvort að hann væri fluttur inn þar sem ég sá ekki aðra mögulega orsök fyrir veru hans í húsinu. En þetta var gestur, og mjög indæll í þokkabót, var rétt í þessu að banka uppá hjá mér til að gefa mér heimatilbúna köku frá ömmu sinni í Ástralíu! Sumt fólk er bara yndislegt :)

Engin ummæli: