laugardagur, mars 19, 2005

ÚFF PÚFF..
það er búið að vera svo brjálað að gera í skólanum að ég hef varla haft tíma til að anda! Kláraði í gær og dreif mig svo á pöbbinn til að sitja úti og sleikja sólina í veðurblíðunni og njóta þess að þurfa ekki að gera neitt.. Vissi ekki af mér fyrr en klukkan var orðin 8 og ég búin að koma niður svona eins og 5 tvöföldum whiskey í kók. Dreif mig á danssýningu hjá Línu og kíkti svo aftur á pöbbinn.. endaði með því að ég fór heim seint og um síðir og þurfti þá að skella mér í að pakka öllu sem ég á því í dag er ég að flytja! JEIJ! Burt úr einangruninni og á stað sem er frábær.. strætó beint í skólann, stofa og gestir velkomnir :)
Nú er bara að passa sig að æla ekki aftur í bílinn hjá afa eins og þarna um árið...

Engin ummæli: