Hææ ég er komin heim!!
Reyndar kom ég fyrir rúmum 3 vikum EN vegna þess að ég er búin að vera blind og í gifsi á báðum höndum og með kjálkana reyrða saman vegna tannréttinga hef ég ekkert getað bloggað síðan.. ALVEG SATT!
Ég byrjaði dvölina að sjálfsögðu á íslenskri útilegu, brunuðum uppá snæfellsnes en hættum svo reyndar við að tjalda og fórum í Lág (sumarbústaðinn hennar Þórhildar í Grundarfirði) og eyddum nóttinni þar, sem var líka eins gott því þegar við komum heim uppgötvuðum við að við höfðum skilið tjaldstangirnar eftir heima. Seinni á leiðinni heim fórum við í hestaferð á Löngufjörum sem var yndisleg og til að kóróna allt saman sáum við risa haförn í 10 metra fjarlægð - ótrúlega flott! Er reyndar að fatta að líklega lásu allir um þessa ferð hjá þórhildi fyrir nokkrum vikum síðan en mer er alveg sama, þið voruð örugglega búin að gleyma þessu hvort sem er.
Annars er helst að frétta að ég er komin með vinnu - ég er að hanna búninga fyrir sumaróperuna sem verður æfð í sumar og átti að vera frumsýnd 21.ágúst en það verður smá seinkun og í staðin verður hún ekki sýnd fyrr en í júní á næsta ári.. smá seinkun hmmmm... En satt að segja kemur þetta sér nú eiginlega bara vel fyrir mig, þýðir að ég fæ auka mánuð til að klára þá sem er ekki svo lítið verk því þetta er 50 manna sýning á stóra sviðinu í þjóðleikhúsinu og verður líka aðalviðburðurinn á listahátíð, eða eins og Andrés Önd myndi segja GÚLP! En ég er ógeðslega spennt og þetta gengur bara vel, bara að spýta í lófana og á að sjálfsögðu eftir að verða ógeðslega flott! Ég ætla líka að hitta Börk sem er að hanna leikmyndina fyrir Voytseck sem Vesturport er að setja upp og fæ líklega að hjálpa til með props og eitthvað svoleiðis þar sem er líka frábært.. Sé semsagt ekki fram á mikil sólböð og rólegheit en það er líka bara gott, tek Drottninguna mér til fyrirmyndar og massa þetta bara!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli