miðvikudagur, júlí 27, 2005

Ég er farin að hallast að álagakenningunni minni.. ekki nóg með að bíllinn sé að aftan eins og eftir illa heppnað fitusog þá er síminn minn líka dauður. Eins og þið munið (eða ættuð að muna) var ég rænd úti og fékk þess vegna gefins gamla síma vinkonu minnar, einhver furðuleg nokia týpa og hefur hann verið mikið aðhlátursefni vegna þess að hann er einstakur útlits. Nú hefur hann samt greinilega fengið nóg af því að láta einhverja plebba sem þykjast eiga betri síma hlæja að sér, skiljanlega!! SKAMM YKKUR!
Þannig að eina ferðina enn er ég án símanúmera.. þeir sem ekki settu sitt inn á kommentakerfið síðast endilega gerið það núna.. Takk fyrir takk fyrir!

Engin ummæli: