Ósmart
Úff. Upplifði í alvörunni í gær hvernig er að vera heiladauður - ekki gott. Vaknaði í morgun og mundi óljóst eftir seinni hluta kvöldsins, man samt að ég eyddi óhóflegum tíma á baðherbergisgólfinu með fólk stumrandi yfir mér að reyna að láta mig drekka vatn og æla sem hvorutveggja gekk illa. OJ! Þetta á náttúrulega ekki að koma fyrir eftir 18 ára aldurinn.. finnst eins og ég ætti að hafa lært eitthvað af allri vitleysunni þá. En nei, ég er ekki eins klár og ég hélt og þarf víst örugglega enþá að passa mig því gryfjur áfengisdrykkjunnar eru enn við hvert fótmál og hugsanlega betur faldar en nokkurntíman áður.
En gott kvöld samt. Þórhildur kom sterk inn með frábæran (en greinilega hættulegan) drykkjuleik og allir voru ógeðslega skemmtilegir. Svo hefur þetta fólk greinilega gott hjartalag líka því það kom mér til bjargar á ögurstundu og Berglind var meiraðsegja svo væn að drösla mér heim og koma mér í rúmið.
Fegin er ég bara að þetta hafi gerst í fámennu partýi en ekki á skemmtistað - djöfull hefði það nú verið ósmart!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli