Klukk?
Fyrsta kommentið mitt í 3 mánuði og það er klukk! Það var hún Silja frænka sem skildi þessi dularfullu skilaboð eftir hjá mér.. vissu kannski allir um þetta nema ég? Nú er ég búin að skoða síður nokkurra bloggfélaga hennar silju og ég skil.. einhverjum forvitnum hefur dottið þetta í hug til að geta hnýstst (er þetta orð?!) í einkalíf annara og líklega kemur eftirfarandi í menningartímaritinu 'hér og nú' áður en vikan er úti.
1. Ég elska að njósna um fólk sem borar í nefið á rauðu ljósi og hlæja að því
2. Ég á alls ekki eins mikið af skóm og sumir vilja meina
3. Mér finnst bara gaman í íþróttum þar sem er hægt að vinna
4. Ég trúi því að allt sem við gerum og allar ákvarðanir sem við tökum þjóni tilgangi og skili sér inn í framtíðina
5. Ég bora alltaf nefið á rauðu ljósi
Og nú klukka ég Þórhildi - Melkorku - Kamillu - Kötu - Berglindi (sú síðastnefnda, láttu þér þetta að hvatningu verða til að byrja að blogga aftur.. en fyrst þarftu líklega að skipta um titil!?)
Hvað er annars málið með 20kg hámarksþunga farangurs í flugi? Ef maður má vera með 65kg í flug til Bandaríkjanna, hvernig réttlæta þá flugfélögin að maður megi bara hafa 20 kíló þegar maður flýgur til Evrópu og sé í þokkabót rukkaður um 1000 krónur fyrir hvert einasta kíló sem fer fram yfir hina svokölluðu löglegu þyngd. Já, er nema von að maður spyrji. Þetta eru jú eftir allt saman sömu vélarnar sem við erum að tala um ekki satt, getur verið að fólkið sem flýgur til og frá Bandaríkjunum sé svona mikið léttara en við Evrópufarar að það fái að bæta sér þyngdarmismuninn upp í farangri. Í ljósi þess sem ég hef séð til og heyrt um Bandaríkjamenn leyfi ég mér að fullyrða að 'NEI! Þetta er ekki skýringin' Hvað er það þá? Vitiði hvað 20 kíló eru fljót að koma? Mjög fljót skal ég segja ykkur og alveg sérstaklega ef maður ætlar að vera lengur en í tvær vikur, ég tala nú ekki um nokkra mánuði. Væri ekki eðlilegt að hámarksþyngd farangursins færi eftir dvalarlengd? Það segir sig sjálft að manneskja sem er á leiðinni í árshátíðarferð með vinnunni til Færeyja hefur ekkert við 40 kílóa ferðatösku að gera. Á það sama við um fátækan námsmann sem er að fara út í skóla og hefur ekki endalaust efni á að kaupa nýtt af öllu en er í vandræðum því að hann veit að innan 20 kílóa takmarksins rúmast ekki hlý föt, skór, bækur, ýmiskonar námsgögn, snyrtivörur og þá or sko augljóslega ekkert pláss fyrir smá lifrapilsu, tópas og eina egils appelsín í gleri? Það er alveg augljóst að flugvélin getur auðveldlega borið alla þá þyngd sem í hana kemst. Af hverju þá þessar fáránlegu reglur? Mig er farið að gruna að flugfélögin hafi einfaldlega eygt enn eina leiðina til að græða á okkur aumingjunum. Þau vita að það er erfitt, já, nánast ómögulegt að ferðast með minna en 20 kíló og að margir geta ekki mætt þessum fáránlegu kröfum og neyðast því til að borga þúsundir, ef ekki milljónir í yfirvigt. Ágóðinn fer síðan í að kaupa af tollurunum gæðakjötið sem þeir tóku af okkur líka, góðgæti meððí og líklega fer einhver aur í gos handa þeim sem ekki drekka og þurfa að skutla grísunum heim eftir veglegt partý á okkar kostnað..
Ef einhver veit hið raunverulega svar við spurningu minni eða lumar á hugleiðingum, hendið þeim þá endilega inn í athugasemdahornið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli