BIRDS BIRDS BIRDS
Ég er vægast sagt komin með æluna af þessu verkefni.. er búin að vera í þessu í nokkra mánuði, búa til brúður, setja upp sýningu og nú er ég að gera einstaklingsverkefni um sama leikrit og hef 5 daga til að klára það sem ég myndi venjulega gera á 3 vikum. Þetta er geðveiki. Er samt alveg spennt yfir því sem ég er að gera, þetta er bara aðeins of mikið af því góða. Það skrýtna er samt að ég er ekkert mjög stressuð, þótt þetta sé lokaárið og mikilvægt verkefni. Kannski er það bara þroskamerki.. eða vanþroska.. er ekki alveg viss.
Átti tildæmis alveg yndislega morgun þótt ég mætti ekkert vera að því. Fór í göngutúr með vini mínum hjá kanalnum.. alveg æðislegt veður! Borðuðum morgunmat úti og löbbuðum svo um í almenningsgarðinum og sátum á bekk og nutum sólarinnar og í augnablik gleymdi ég því að það er febrúar og brjálað að gera. Hugsaði samt með mér að ég hlyti að hafa gott af því að næra aðeins sálina, fann líka að ég hef ekki verið úti lengi því ég gat ekki stillt mig um að hlaupa og hoppa útum allt.. hefði velt mér um í grasinu ef það hefði ekki verið blautt og kalt.
Einn meðleigjandinn minn er svo loksins að flytja sem er gott því hann er ekki búinn að borga leigu í ár.. veit ekki alvg hvernig hann er búinn að fara að því og kallinn sem á íbúðina er að verða alveg gal. Líklega hefur hann komist upp með það því það er í rauninni ólöglegt að búa hér því þetta er ekki íbúðarhúsnæði. En sem sagt, hann er að flytja og ég ætla að skipta um herbergi og taka hans, þótt ég elski mitt herbergi og það sé yndislegt þá sakna ég þess að hafa glugga og hans er með svoleiðis.
Ooooog svo er ég að skreppa til íslands bráðum! Alveg óvænt. Hann Bernd vinur minn brúðuleikari bað mig um að koma og aðstoða hann við að byggja leikmynd fyrir einhverja auglýsingu sem er alveg frábært, hann er yndislegur maður sem gaman er að vinna með og ekki verra að fá frítt far til landsins og smá pening fyrir. Þannig að ég verð hjá honum í Skíðadal í ca viku fyrripartinn í mars, talandi um að næra sálina.. það verður yndislegt að komast útí sveit og borða lífrænt ræktaðan mat. Veit enn ekki alveg hvenar þetta er en ég ætla sko að reyna að ná nokkrum dögum í Reykjavík í leiðinni. Ætti að vita fljótlega eftir helgi hvenar er von á mér þannig að allir geti tekið sé frí frá vinnu og skóla og planað partý HÚRRA!
5 ummæli:
jessss!
tek bara allan mars frá til öryggis;)
Vei! Láttu vita um leið og þú veist.
Jahá ég er sko til í það!!!!!!!!
jeeeeijjj, gaman gaman!
ef ég vissi ekki betur héldi ég að þú hefðir hreinlega breyst í fugl sjálf (hefur sosum alltaf verið ótalegur kólibrí) og floginn á brott frá tölvu og bloggi...
ok. það er mikið að gera. þú ert löglega afsökuð :)
Skrifa ummæli