miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Jæja.. þá er þetta komið á hreint. Kem til landsins fim 8.mars, og flýg svo norður strax sama dag eða morguninn eftir og verð í Skíðadal hjá honum Bernd í 3 vikur að hanna og búa til litla íbúð fyrir brúðufjölskyldu JEIJ! Fæ meiraðsegja vel borgað, fyrir utan að vera í fríu fæði og húsnæði hjá yndislegri fjölskyldu í kyrrð og ró útí sveit. Ég flýg svo út aftur eldsnemma þriðjudaginn 3.apríl og reikna með að geta verið fyrir sunnan frá föstudeginum á undan, svo lengi sem við náum að klára allt á tíma og þá vil ég sko að einhver haldi partý!

9 ummæli:

berglind sagði...

Vá, það er geðveikt langt þangað til :(

Nafnlaus sagði...

þú + bernt og co + skíðadalur = mjög frábært! :)

Kata sagði...

újé, gaman gaman, tsíkahhtsíkahhh, úts úts, jeeeeeeij!

t. sagði...

Ég held sko partý!
Kannski verður bara vesta partý þá (sjá bloggið mitt). Mamma sendi eitt vesti sem nær þér örugglega að hnjám!

Kata sagði...

eða bara vestumeyja partí. voru þær ekki kynóðar?

Ms. Berger sagði...

vestumeyjar? hvað er nú það?

Kata sagði...

æ, það voru meyjar sem bjuggu á sælueyju og tældu steinrík og ástrík til ástarathafna. þetta er eitthvað svona forn-rómverja dæmi. man bara eftir þessu úr teiknimynd sko.

Ms. Berger sagði...

vestumeyjar í vestum frá mömmu þórhildar .. I'm game!

Kata sagði...

gæti ekki hljómað betur... ég er orðin spennt, kannski mamma mín eigi nokkur vesti sem hún er tilbúin að láta að rakna af hendi og ég er sannfærð um mamma þín Eva lumi á gersemum. en þar sem við erum líka vestumeyjar megum við ekki vera í neinu nema vestunum. Jeij!