Ég fékk skemmtilegan póst á föstudaginn.. hann var frá Þórhalli Guðmundssyni og var titlaður -draumfarir-. Ég kveikti ekki á perunni alveg strax og grunaði að hér væri um vírus að ræða, eða jafnvel enn verra.. nefnilega perra! Ég opnaði samt póstinn varlega og byrjaði að lesa. Þetta var þá frá honum Tóta litla sem var í Leikklúbbnum Sögu og hann er sko líka sirkusdvergur!!! Ég hef ekki heyrt frá honum langalengi og hann víst fluttur til Danmerkur með hinni færeysku Amöndu sinni. Ástæðan fyrir póstinum var semsagt að Tóta hafði dreymt skrítinn draum og hér er hann:
Thannig var nefnilega ad thegar ég renndi mér í gegn um nedanjardar vatnsrennibraut uppgøtvadi ég leinidyr í veggnum sem ég fór inn um, thegar ég var kominn inn sá ég ad thetta var leikhús (sem ég hef verid ad vinna í hér í køben) og allt um kring mig voru stelpur í bláum glimmer skautabúningum og thú varst ein theirra. Thannig var nefnilega í pottin búid ad thú varst í listdans á skautum liði sem var búið að fara um allan heim og gera góða hluti en núna voru thið komnar á stað thar sem thið áttuð bara alls ekkert að fá að æfa atriðið ykkar áður en thið færuð inn. Thú varst fyrirliðinn og thar með hæstráðandi í fjarveru thálvarans ykkar (hún var dálítið feitlagin og gekk í glimmerbúning daglega) og thú baðst mig um að hjálpa thér við að semja við thá sem voru tharna að ráða ykkur til sýningarinnar sem ég man ekki hvort ég gerði.
Mér datt bara í hug að senda thér póst thetta er nefnilega í annað skiptið sem thú heimsækir mig í draumi og í bæði skiptin baðstu mig um hjálp thó thad væri við undarleg efni.
Mér finnst þetta líka ótrúlega skrýrið.. sérstaklega af því að við Tóti höfum hvorki heyrst né hist í nokkur ár, þannig að ef einhver telur sig kunna að ráða drauma þætti mér gaman að heyra ráðninguna!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli