sunnudagur, febrúar 27, 2005

Takk fyrir mig!
Berglind Hólm Ragnarsdóttir kíkti í heimsókn fyrir viku.. stoppaði reyndar ekki nema í einn og hálfan sólarhring en sá tími var hlaðinn spennu og aldrei var dauð stund. Hún mætti á laugardagskvöldið og stefnt var á Dolly Parton kvöld þar sem verðlaunum var lofað fyrir besta búninginn. Við skelltum okkur í Dollygallan með vodka og vatn í annari og dísætt desertvín í hinni.. það tók hátt í þrjá klukkutíma því það reyndisr erfiðara en við bjuggumstvið að líkjast kántrýgyðjunni ómótstæðilegu! Brjóstin komu fyrst en svo flæktust málin, við reyndum og reyndum og tókst ýmist að líta út eins og vændiskonur eða leikkonur úr ódýrri klámmynd.. en stundum verður maður bara að láta gott heita og við skelltum okkur út yfir okkur æstar og tókst að draga lögfræðinemann sem býr með mér með okkur. Við höfðum ekki fyrr stigið fæti út fyrir dyrnar en við fengum veður að því að Dollypartýið væri fullt út úr dyrum og stefnan hefði því verið tekin á lítið og notalegt arabískt tehús. Ákveðnar í að eiga gott kvöld drifum við okkur þangað og með brjóstin (sem að hefðu fengið Katrínu Björk til að roðna) út í loftið og lögfræðinemann í eftirdragi. Þar var lítil djammstemning í hinu liðinu þannig að við þurftum að koma upp með plan. Eftir nokkra ginogtónik og viskííkók ældi lögfræðineminn því út úr sér hann vissi um stað í næstu nágreni, nefnilega LEYNIklúbb! Fyrr en varir stóðum fyrir utan hús sem leit út eins og skrifstofuhúsnæði og Chris (lögfræðineminn) gaf manni sem stóð fyrir innan dyrnar einhverskonar leynilegt merki. Maður opnaði dyrnar og leiddi okkur að lítilli lyftu (þetta var allt saman mjög leynilegt og dularfullt) og þegar upp kom tók á móti okkur heljarinnar partý með bar og öllu tilheyrandi. Ég skemmti mér konunglega.. enda ekki á hverjum degi sem maður fer á djammið með Berglindi og þetta var einstaklega frábær helgi í alla staði!
TAKK FYRIR MIG!

Engin ummæli: