mánudagur, ágúst 01, 2005

Vaknaði við símtal í gærmorgun. Það var hún amma Maggý að tilkynna mér að enn eitt barnabarnabarnið væri fætt. Halli frændi minn sem býr nú í Þýskalandi hefur nefnilega verið að standa í því að búa til sitt fyrsta barn, litla stelpu sem fæddist 23.júlí og í gær var það svo Ari frændi og hans kona sem komu með eitt nýtt.. líka stelpu. Nú eru semsagt komin 7 barnabarnabörn. Amma nýtti að sjálfsögðu tækifærið til að kvarta aðeins yfir því að ég, Freyr og Silja værum sko ekki að standa okkur í stykkinu, værum hálfgagnslaus barasta, komin á gamalsaldur og ekki enn farin að framleiða! Ég útskýrði að ég vildi klára að læra og svona en lofaði að koma með strák einn góðan veðurdag en hún endaði samt símtalið á orðunum "jaá.. bara ekki bíða of lengi, ha.. EKKI BÍÐA OF LENGI!!" Hún er meiraðsegja farin að skamma mömmu fyrir að hafa alið upp svona ófrjó börn. Ég hefði nú haldið að tvö barnabarnabörn á einni viku væri alveg nóg í bili auk þess sem hún tilkynnti mér að það væri víst eitt enn nýgetið, grunar helst að það sé einhverskonar barnabarnakeppni á milli kellinganna í sveitinni.. best að fara að fylgjast hvort nokkuð sé búið að eiga við getnaðarvarnirnar!!

Engin ummæli: