föstudagur, febrúar 17, 2006

Allt er æði!
er að springa úr æsingi yfir verkefninu mínu í skólanum þessa stundina - held að það að fara í þetta nám hafi verið besta ákvörðun sem ég hef tekið á ævinni (fyrir utan það að taka saman við víking - það toppar þetta hugsanlega því eins og allir vita er hann yndislegur og frábær og besti kærastinn í öllum heimi)
Þórhildur bauð okkur jóni gunnari uppá sushi í kvöld og mm mm mmm hvað það var nú gott! Kíktum svo á bar og fengum okkur ginger og lemongrass mojito sem ég hef ekki prufað áður og var afar gómsætur og til að kóróna kvöldið kom fögur blokkukona og bauð uppá nudd - ef þetta er ekki rétta rétta leiðin til að lifa lífinu þá veit ég svei mér þá ekki hvað það ætti að vera ??
Annars veit ég ekki hvað er í gangi - ég er aldrei þreytt þegar ég fer í rúmið - þórhildur sefur eins og ungabarn við hliðina á mér og ég er að hlusta á 'The most relaxing classical music in the world ever' plötuna og samt alveg massa hress. Bara að ég væri jafn hress á morgnana - þá væri þetta fullkomið!

Engin ummæli: