sunnudagur, febrúar 26, 2006

Eva Berger, 87 ára
Fór með ömmu og afa í heimsókn í dag til nöfnu minnar hennar Evu Berger. Pabbi hennar og pabbi afa voru tvíburabræður. Hún er búin að búa í Englandi síðan 1939 en hingað til höfum við aldrei hist. Hitti líka skólasystur hennar frá því að þær voru litlar stelpur í Tékklandi. Amma var semsagt næst mér í aldri af öllum þarna - á milli okkar eru bara 56 ár.
Þetta var ótrúlegt! Það er ekki á hverjum degi sem ég hitti ættingja úr föðurættinni. Maðurinn hennar er upprunalega ítlaskur og gaf okkur besta lasagna sem ég hef á ævi minni smakkað. Þau eru gömul og krumpuð og yndisleg. Þarna sat ég með fjórum einstaklingum yfir áttræðu og skemmti mér konunglega, ég held að okkar kynslóð hefði gott af því að eyða meiri tíma með gamla fólkinu, þau minna mann á hvað er mikilvægt í lífinu - þau þurfa ekki að segja manni það, maður finnur það bara. Ég held að það sé nefnilega málið, maður heldur að maður læri mest af því að lesa hluti eða láta fólk segja sér þá en í rauninni held ég að mikilvægustu hlutina læri maður af samveru við annað fólk.
Áður en við fórum dró nafna mín mig að afsíðis og gaf mér gamla skartgripi, þar á meðal nokkra sem maðurinn hennar bjó til og nælu sem hún hvíslaðu að mér að kærasti hennar frá því að hún var ung hefði gefið henni. Gamalt fólk er fallegt!
Annars er ég búin að eyða megninu af helginni í að sýna fólki húsið og herbergin - þetta var orðið svo ruglingslegt að hausinn á mér var að springa. Í kvöld komu sirka 10 manns á tveimur tímum að skoða 3 herbergi og ekkert þeirra losnar á sama tíma púff. En góðar fréttir við fundum manneskju til að flytja inn í litla herbergið mitt þannig að næstu helgi flyt ég inn í stórt herbergi LOKSINS eftir að vera búin að vera í kremju með allt mitt drasl síðan ég kom til London HÚRRRRAH!
En engin hvíld.. nú þarf ég að búa til líkan af rúminu mínu OG rúmfötunum.. en jæja - eins og ég sagði, bara að muna hvað er mikilvægt og ekki hafa áhyggjur, hlutirnir fara eins og þeir fara og ég get gert mitt besta - ekki meir :)

Engin ummæli: