miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Klukkan er aftur fjögur og ég er aftur að fara að sofa. Dagarnir eru farnir að taka á sig frekar furðulegt munstur hjá mér undanfarið. Í gær var ég að elda mér dýrindis hvítlaukssúpu í kvöldmatinn áður en ég héldi áfram að læra þegar ég hitti víking á msn - 'ertu að elda núna??? ' sagði hann. Leit þá á klukkuna og fattaði að hún var hálf tólf.
Málið er bara að það er svo gott að vinna á nóttunni. Enginn að hringja eða senda sms, engar búðir opnar, ekkert annað sem maður gæti hugsanlega átt að vera að gera, ekkert stress. Ég held að það sé misskilningur að fólk eigi að sofa á nóttunni og vaka á daginn - eðlilegast væri að fá það besta úr báðu, sofa hálfa nótt og hálfan dag, fara að sofa klukkan 17 og vakna klukkan 2, það hljómar ágætlega! Annars er þetta nú alveg að verða svona og svo þegar allt verður tölvustýrt og enginn þarf að mæta neitt í vinnuna eiga allir eftir að finna sér þann svefntíma sem hentar og samfélagið skiptist ekki lengur eftir þjóðerni, trúarbrögðum eða menningu heldur eftir svefnmunstri.

Engin ummæli: