Allt fór vel!
Afmælið hennar mömmu heppnaðist! Við þurftum reyndar að byrja á því að reka kvenfélag fríkirkjunnar út úr salnum, en þeim datt allt í einu í hug að vera með basar frá klukkan eitt til fimm þótt þær vissu að það væru hátt í 200 manns að fara að mæta í veislu klukkan sjö.. þvílík frekja!! En við náðum að losna við þær og gátum byrjað að skreyta og undirbúa klukkan fjögur. Kata kom og hjálpaði og við vorum alveg að verða búnar þegar fyrstu gestirnir mættu. Svo gekk bara allt rosa vel.. nokkrir héldu ræður og allir höfðu rosa fallega hluti að segja um mömmu. Ég fór aðeins upp líka, fannst það eiginlega vera skylda mín þar sem elsta barnið mömmu var fjarverandi. Ég var ekkert undirbúin og frekar vandræðaleg en náði að redda þessu með því að vera bara krúttleg og pínu full og segja að mamma væri best í heimi og hrópa fimmfalt húrra... sem ég náði líka að klúðra pínu og þá missti ég töluna en ég held þau hafi örugglega verið fimm... Mömmu fannst þetta allavega voða sætt og fór pínu að gráta - vonandi af stolti en ekki skömm!!!
Ég var mikið að lenda í því að fólk kom til mín og sagði "Nei, er þetta ekki hún Eva litla! Til hamingju með mömmu þína" og ég vissi aldrei hver neinn var og var alltaf eins og asni.. "Takk.. já sæl.. og þú ert aftur..? Já Ólöf sæl.. nei ég man ekki alveg, ha.. jaaá alveg rétt gaman að sjá þig, jú ég hef það rosa fínt.. VANDRÆÐALEG ÞÖGN ..nei, heyrðu þarna er einmitt manneskjan sem ég var að leita að.. gaman að sjá þig" Allt sagt voða kurteisis- og formlega. En þetta skánaði með hverju glasinu og á endanum var þetta orðið meira "hææ.. nei ég man ekkert eftir þér en það skiptir ekki máli, fáum okkur bara rauðvín og sígó.. mhhmmmhmhmm" (allt með Ab Fab rödd)
Eftir veisluna þar fór fólk á Kaffi List og ég var aðeins eftir til að ganga frá og þegar við fórum loksins vorum við búnar að gleyma List og fórum í MA partý á Gauknum. Þar kom sér vel að vera dvergur og ég laumaði mér inni án þess að borga.. OFT! Á meðan stóð Kata frammi og endaði með því að einhver borgaði fyrir hana. Við hittum nokkra MA-inga, s.s. Fanney Dóru, Hörpu Sætu og Arnór og þau voru öll í mega stuði, annars fannst mér staðurinn aðallega innihalda glatað fólk sem virtist ekki einusinni hafa heyrt um MA þannig að ég fór bara heim og spældi egg.
Svo kom sunnudagurinn!
Ég var búin að plana að allt skyldi vera fullkomið þegar kærastinn kæmi heim! Íbúðin skyldi þrifin hátt og lágt, kertum og reykelsum komið fyrir hvarvetna og rómanísk og jafnframt kynþokkafull tónlist sett á fóninn..
Ég vaknaði fyrir hádegi og fékk mér alkaseltzer.
Kl rúmlega tólf fór ég á fætur, braut saman þvottinn og vaskaði upp helminginn af uppvaskinu.
Kl að verða eitt ældi ég spældu eggjunum.
Kl rúmleg eitt lagðist ég upp í sófa og byrjaði að horfa á freinds spólu.
Kl átta stóð ég upp úr sófanum aftur. Þá var ég búin að horfa á friends, dýralífsþátt, malcolm in the middle og viðtal við Davið Attenborough. Ég var líka búin að borða popp og ís.
Kl hálfníu fór ég í sturtu og gerði mig sæta.
Kl að verða tíu fór ég til mömmu.
Kl ellefu lagði ég af stað út á Leifsstöð og sofnaði næstum á leiðinni.
Kl tuttugu mínútur í tólf var ég komin út á flugvöll.
Kl eitt sá ég Víkinginn minn koma út um hliðið og nú er allt frábært!!!!!!!
Ráð dagsins:
Ekki drekka tvöfaldan Tia Maria í bjór!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli