Ég sagði EFTIR helgi til ykkar sem eruð búin að kvarta.. og nú er meirað segja sunnudagur og formlega enþá helgi þannig að ég hlusta ekki á neitt rugl!
Ég sá þetta hjá Berglindi og varð auðvitað að taka prófið..

You are a goddess!
Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla
Heii.. alveg eins og Berglind, það er sko ekki amalegt!
Ég vissi nú alltaf að ég væri ómótstæðileg en þetta feykir burt öllum efa! Samt frekar glötuð mynd, myndi sko ekki vilja vera þessi gella fyrir mitt litla líf.. þó hún sé kroppur og sona þá er þetta nú frekar hallærislegt og Guiding, hún er eins og strippari í sellófani sem hefur keypt sér vindvél og uppstoppaðan kött! Ég er að pæla í að senda þeim mynd af mér til að þetta þurfi ekki að vera svona púkó..
Lítið er búið að gerast frá því í síðasta bloggi.
Það merkilegasta er líkklega að við erum búin að kaupa okkur bíl. Og það sem meira er þá keyptum við hann af fyrrverandi konunni hans Víkings sem gaf okkur sko fínan díl.. það var samt örugglega af því að bíllinn er svo viðbjóðslega ljótur á litinn að hún hefur ekki viljað hafa hann fyrir utan húsið sitt. Já, liturinn á þessum bíl slær nefnilega öll met í ljótleika (á eftir gulum og kokkteilsósulituðum bílum sem eru náttúrulega mest ógeð!) Hann er nefnilega gulgrænn eins og hor! En mér finnst hann samt æði. Hann er gegt góður og maður finnur hann strax á stórum bílastæðum og svo dettur náttúrulega eingum í hug að stela bíl sem er svona á litinn, það væri eins og að stela fötum úr Tízkufataverzlun Steinunnar!
Síðasti skóladagurinn minn var svo á föstudaginn og nú eru bara smá próf of verkefnaskil eftir og svo bara jólafrí!! Eftir skóla fór ég með Elvu vinkonu að skrifa undir samning af því að hún var að selja íbúðina sína manni sem ég er viss um að hafi verið leikinn af Jóni Gnarr.. þetta var algjört djók! Svo þegar hún var búin að fá milljón í vasann fórum við á barinn ásamt Víkingi og fengum okkur bjór. Þá var klukkan hálffimm. Klukkan hálfþjú fórum við heim og vorum þá búin að drekka örugglega fimm lítra af bjór hvert og búin að semja bestu pikköpplínur í heimi.. misvænlegar til pikköpps reyndar en allar ótrúlega frábærar samt! Ég mundi skrifa þær hér en ég er hrædd um að fullum áhrifum sé ekki náð nema að þeim sé hvíslað með seyðandi röddu inni á skemmtistað - sorry.
Svo komst ég líka að einu hrikalegu! Það eru til strákar sem eyða lengri tíma fyrir framan spegilinn en kærusturnar sínar sem eyða sko samt líka löngum tíma þar! Þeir bera á sig brúnkukrem og blása á sér hárið og setja svo allskona efni í til að geta raðað því betur og ef það mistekst þá bleyta þeir hárið aftur og gera allt uppá nýtt!!!!!!og það sem meira er þá getur þetta enurtekið sig allt upp í fimm sinnum á einu kvöldi!! OH MY GOD segi ég nú bara.. pæliði í því að þurfa að bíða endalaust eftir því að kærastinn sé búinn að taka sig til og gera sig sætan, þvílík MARTRÖÐ! Þá er ég nú fegin að eiga bara mann sem skiptir um peysu og er til í tuskið! - ætli það séu til reglur um það hvað má nota mörg upphrópunarmerki, eins og tildæmis "aðeins má nota eitt upphrópunarmerki á móti hverjum tvöhundruð stöfum í hverri málsgrein"???
Þynnkuhorn Evu:
Drekkiðið kakómalt áður en þið farið að sofa og þá verðiði ekki þunn.. það hjálpar líka að borða heilan djúpsteiktan Camenbert snemma á drykkjuferlinu. Gangi ykkur vel!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli