fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Það er svo mikið að gera!!
Ég hef ekki einusinni ­tíma til að vera að skrifa þetta en ég ætla að stelast og gera það samt.
Mamma átti afmæli í gær og er núna orðin hvorki meira né minna en en 50 ára!!!!! Auðvitað verður að halda risaveislu á laugardaginn og manni er náttúrulega Þrælað út við föndurvinnu og annan undirbúning. Svo er líka tískusýning unglistar (auðvitað sama dag og veislan hennar mömmu) sem ég er að taka þátt í og þarf a klára að sauma fötin fyrir OG ég asnaðist náttúrulega til að taka að mér að gera sviðsmyndina og þarf að redda því öllu saman líka. Ofan á þetta bætast skólaverkefni, vinna, samvistir við Kötu og væntanleg heimkoma V­kings á sunnudaginn sem ég held varla vatni yfir.. ÉG ER AÐ DREPAST ÚR SPENNINGI - JEIJ!
Ég held samt að þetta reddist nú alltsaman og eigi eftir að heppnast vel.. Veislan verður örugglega skemmtilegt allsherjar fyllirí þar sem að ég mun þurfa að hafa mig alla vil til að slá öllum gömlu kempunum í fjölskyldunni við í fylli. Áður en a V­kingurinn minn kemur svo heim verða Versage, Gaultier og öll önnur tískuhús í­ heimi búin að hringja í­ mig og bjóða mér vinnu og þá mun ég sko aldrei þurfa að hafa áhyggjur af neinu og vinkonur mínar munu ekki sjást í­ öðru en Gucci og Prada fötum, Manolo Blahní­k skóm og með Louis Wuitton töskur.. Carrie, watch out!!

Og eins og alltaf þegar er brjálað að gera og mikið liggur við heldur maður matarboð og dettur í það .. það er eina leiðin til að höndla svona álag!
Í gærkvöldi komu semsagt Kata, Elva og Egill og Erla og borðuðu hjá mér kí­nverskan mat. Erla fór snemma en við hin helltum í­ okkur rauðvíni og bjór og töluðum um andaglas, brjóst, graðar flugfreyjur og fullt fleira sem ég man ekki alveg þessa stundina hvað var. Berglind kíkti í heimsókn, fór í­ sturtu og dreif sig svo fljótlega heim í faðm elskhugans.. þetta var frábært kvöld í alla staði!!
Áður en við fórum a sofa skáluðum við Kata svo í alkaseltser til að vera nú örugglega hressar í dag..

Ég mætti í­ skólann klukkan 11 - Á RÉTTUM TÍMA og var svona líka hress til klukkan hálf þrjú, þá hljóp inná subbulegasta karlakllótið í iðnskólanum öllum (og þau eru sko mörg subbuleg) og skilaði þar hádegismatnum mí­num. Ég nennti ekki meir og fór bara heim og upp í sófa og horfði á vídeó til klukkan fimm.. þá var ég búin að æla því­ sem ekki komst leiðar sinnar á kallaklóstinu og fylla magann af poppi. Það læknaði mig sko og nú er ég orðin hress á nýjan leik.

Nú er ég að fara að sauma og föndra með mömmu.

Heilræði dagsins er:
Það er vont að æla jógúrt og ávöxtum en fínt að æla eplasafa - popp er gott í þynnku!

Engin ummæli: