Löngu kominn tími til að koma þessu helv.. bloggi í gang aftur!
Ég veit ekki hvað gerðist en allt í einu datt allt út og ég veit ekkert af hverju.. náði að setja gömlu blogginn inn en á kostnað linkanna minna sem ég hef ekki séð tangur né tetur af síðan. En nú vona ég að ég nái með minni ótrúlegu færni og þekkingu tölvum og vefheiminum að koma þessu öllu í lag!
Ég tók mitt síðasta próf í gær.. kannski mitt síðasta áður en ég fer í háskóla.. hver veit?! - Allavega ekki ég af því að við erum búin að vera að bíða eftir svari frá einhverjum gaurum í London endalaust lengi og það vill svo óhepilega til að þessir menn stjórna því óbeint hvort ég sé að fara að vera á Íslandi eða fara til London eftir áramót. Ef ég verð hér hugsa ég að ég klári stúdent nr 2 og geri aðrir betur! Ætli það sé hægt að ná sér í bara svona 5-6 stúdentspróf og þau jafngildi þá master, eða jafnvel doktor???
En já.. ég er semsagt búin í prófum og allt gekk vel.. spái þrem 10 og fjórum 9 og opna hér með veðbanka í kommentakerfinu mínu..
Berglind og Palli kærastinn hennar, Elva og Egill kærastinn hennar og Júlía mágkona komu heimsók eftir vinnu í gær og fóru aftur um sexleytið í morgun eftir mikla bjórdrykkju og stuð - ég er ekki þunn núna heldur þannig að allt er frábært, nema kannski reykingalyktin sem hefur tekið sér bólfestu í íbúðinni minni og neitar að fara EN það skiptir ekki máli af því að á morgun er ég að fara til Madrídar að heimsækja mína heittelskuðu Berglindi Hólm Ragnarsdóttur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! VEI!
Ég ætla að drekka mikinn bjór, borða mikinn mat, kaupa mikið og gera allt sem er hægt að gera skemmtilegt með bestu vinkonu sinni á Spáni.. nema að liggja í sólbaði og nú hef ég meiraðsegja fengið ábendingu um að taka með mér úlpu! Ja svei, ég segi nú ekki annað!!!!
Þórhildur! Þér er velkomið að fá íbúðina mína og kærastann minn að láni meðan þú dvelst hér í Reykjavík... verst bara að ég hitti þig ekki!!! Hvernig er planið þitt yfir hátíðarnar??
Linkarnir mínir koma ekki inn og alltaf þegar ég birti nýtt þá dettur allt annað út!!!
GETUR EINHVER SAGT MÉR HVAÐ ÉG Á AÐ GERA?????
Engin ummæli:
Skrifa ummæli