mánudagur, desember 01, 2003

Hver fann upp myndvinnsluforrit í tölvum???
Segið mér hvar hann á heima og ég fer og rassskelli hann.. og ég meina það!

Af hverju þarf allt sem tengist tölvum að vera svona ógeðslega mikið vesen? Það eina sem ég vil gera er að taka nokkrar myndir, laga þær til og prenta þær svo út.. en neeeeiiii það er sko ekki hægt nema að ég eyði í það þrem dögum og tapi geðheilsunni!!! Prentarinn minn ákvað á þessum viðkvæma tímapunkti á námsferli mínum að hætta að prenta og aðrir prentarar borgarinnar haga sér ekki mikið betur... taka endalausan tíma af því að upplausnin er of há!! Upplausn smupplausn segi ég nú bara.. hvernig á maður að geta vitað þetta allt - ÞAÐ ER EKKI HÆGT!!!
Ég skora á alla tölvugaura í heimi að drullast til að finna upp notendavænar tölvur sem maður getur bara sagt við "ég ætla að fá þessar myndir í A4 ef þér væri ekki sama, notaðu bara bestu og fljótlegustu leiðina" og tölvan og prentarinn vinna saman eins og bestu vinir og ég fæ myndirnar mínar á 10 mínútum!

Ég er hér með búin að stofna samtökin TÖLVUR TIL ANDSKOTANS - þeir sem vilja ganga í þessi samtök vinsamlegast hafi samband við mig

Þynnkuráð: Það virkar ekki að drekka Alkaseltzer fyrir svefninn.. bara þegar maður vaknar.

Engin ummæli: